laugardagur, 15. september 2007

Ný síða

Það gekk víst eitthvað stirðlega með síðustu bloggsíðu svo ég ætla að reyna aftur á þessari síðu. Ég ætla að reyna að blogga eins oft og ég get og hef tíma til og reyni líka að setja inn myndir. Ég er líka voða dugleg að setja myndir á myspace-ið mitt og hægt að skoða þær þar, www.myspace.com/asadora
Annars er það að frétta héðan að það er sem sagt allt komið í gang. Mér líður eins og ég sé búin að vera í nokkra mánuði í skólanum þótt það séu bara tæpar þrjár vikur búnar! Ég er búin að taka eitt próf í srærðfræði og fékk 8,4 og svo var efnafræðipróf í dag. Endalaus heimalærdómur og próf/kannanir. En það bætir þetta allt upp hvað ég er í æðislegum bekk! Svo er líka fullt að gera í Tónó. Ég á að taka 5. stig fyrir jól og verð þá á 6. stigi, er síðan bæði í hlustun og greiningu og tónfræði.
En er orðin of þreytt til að skrifa meira, reyni að skrifa eitthvað innihaldsríkara næst. :P Góða nótt ;*
kv. ása

1 ummæli:

Elva sagði...

En gaman ad thú sért líka komin med blogg yesyesyesyes :)) vid verdum rosalegar bloggarapíur!! Verd ad fá mér myspace svo ég geti kíkt á allar myndirnar thínar...
Elva sys